Ég er móðir tveggja yndislegra dætra, gift æskuvini mínum, búsett á höfuðborgarsvæðinu og er á besta aldri - á öllum aldri! Ég er þakklát fyrir þau tækifæri sem ég hef haft til að ferðast, fræðast og starfa - og vaxa með lífsins áskorunum. Ég sæki innblástur til náttúrunnar, samferðamanna og í heim bókmennta og lista og finn gleðina í leik með börnum mínum sem og í allri nýsköpun.
Ég starfa sem framkvæmdastjóri Opna háskólans í HR. Auk stjórnunarstarfa og kennslu við HR hef ég unnið síðastliðin ár sem leiðbeinandi og stjórnendamarkþjálfi (executive coach) hér heima og erlendis, og leitt fjölda vinnustofa um árangur einstaklinga, liðsheilda og vinnustaða.
Ég lauk BSPH og MHA háskólagráðum frá University of North Carolina in Chapel Hill á sviði heilbrigðisstefnumótunar og stjórnunar. Jafnframt lauk ég Advanced Management Program (AMP) frá IESE/HR og er með alþjóðleg ACC réttindi sem markþjálfi. Mín sérþekking liggur á sviði stefnumörkunar, persónulegrar forystu og færni, auk leiðtogafræða.
Ég starfa með stjórnum nokkurra fyrirtækja og fagfélaga t.d. Klakinu frumkvöðlasetri, Ljósinu, lyfjafyrirtækinu Vistor og Styrktarfélaginu Líf og hef notið þess að vinna að fjölda átaksverkefna og nefnda t.d. "Til fyrirmyndar" og Young Europe Africa.
Ég hef sérstaklega gaman af útivist, geocaching, kajakróðri, ferðalögum um óbyggðir landsins og ævintýraferðum um allan heim. Ég hef mikla unun af því að skapa og upplifa góðan mat og stemningu, gleymi mér í Suduku og völdum "podcöstum" og finn friðinn úti í matjurtargarði!
Nánari upplýsingar um verkefni mín, menntun og ábyrgð er að finna hér: http://www.hr.is/starfsfolk/gudrunhogna
Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands
Stjórnskipunarþróun í Evrópu
Ágrip af þróun Stjórnarskrárinnar
Stjórnlagaþing
Hjálparkjörseðill
Nýtt kosningakerfi STV - eitt atkvæði - eitt kjördæmi
Við stöndum enn og ný á miklum tímamótum sem þjóð. Þegar grunnforsendur hafa brugðist er mikilvægt að læra af því sem hefur farið úrskeiðis og byggja enn sterkari stoðir um velferð og vöxt okkar samfélags. Stjórnarskráin er sú grunnstoð.
Ný tegund lýðræðis er að festa rætur. Lýðræði, sem byggir á upplýstri þátttöku okkar allra við málum sem varða okkur öll. Upplýst aðkoma Íslendinga að grunnreglum þjóðarinnar er forsenda þess að byggja farsælt samfélag þar sem allir fá sín notið í skjóli öruggrar og skynsamlegrar umgjarðar. Gerum þessa tilraun að farsælu nýju upphafi.
Við erum jafnframt að upplifa mikla vitundarvakningu um grundvöll íslenskrar samfélagsskipunar og stjórnskipulags. Við ætlum að skilja betur og sammælast um grunngildi okkar, þýðingu lýðræðis, skilja betur hvernig vald sprottið frá þjóð og hvernig þú og ég höfum bein áhrif á framgang mála. Við gætum orðið fyrirmynd annara þjóða við að fanga tækifæri sem þekkingarsamfélagið býr að á upplýsingaöld.
Grein Fréttatíminn
Svipmynd nokkur málefni DV
Um okkur. Fyrir okkur. Frá okkur.
Virkara lýðræði.
Traustari grunnur.
Samfélag jafnréttis, sjálfbærni og friðar.
Virðing fyrir landi, fólki og framtíð.
Sátt þjóðar um farsæld Íslands.
Viðtal RÚV
Könnun Biskupsstofu
Grein Skessuhorn
Könnun Samtakanna 78
Grein Sunnlenska
Könnun Félags umhverfisfræðinga á Íslandi
Grein Vikudagur
Grein Fjarðarpósturinn
Samanburður frambjóðendur
Óháð - undirskriftarlisti
Kynning Svipan
Umfjöllun Pressan
Stay featured or remove this badge.
©Guðrún Högnadóttir á Stjórnlagaþing | gudrunhogna_gmail.com | 820 - 6225